14. desember 2006 klukkan 23:09
nennum þessu ekki þar sem við erum með myspace... kíkið frekar á
www.myspace.com/oddurjo
www.myspace.com/guddimagg
Ungfruheimur
03. desember 2006 klukkan 05:01
jæja þá er guddi kominn heim, konni og stebbi í heimsókn svo það er buið að vera nokkuð gaman... En jæja þá er maður byrjaður i prófum, ógeðslegasta prófið er búið s.s islenska 503 og ég er buinn að vera i allan dag að læra fyrir bókfærslu..
Benfica unnu Sporting á útivelli 0-2 svo ég get ekki annað en verið jákvæður og svona fyrir Miðvikudaginn og já leikurinn verður sýndur á 1929 og vil ég , guddi og svenni endilega biðja alla vini og kunningja að mæta og horfa á leikinn með okkur ;) !!!!! svo verður bara drukkið fram á kvöld!!!
En já það er hægt að deila um að ég sé misheppnaðisti maður i heimi, sérstaklega þar sem ég hef ekkert gert neitt solleis í laaangan tíma...
En óumdeilanlega er ég sá óheppnasti!!!! fyrir tæpum 3 manuðum keypti pabbi handa mer fartölvu í þýskalandi, henni var stolið á Kastrup en lögreglan fann hana og sendi hana hingað, þetta drasl tók alveg óratima, en svo kemur tölvan og hvað.. hún hrinur! ónýtt móðurborð og ég er að bíða eftir nýju... rándýri samsung siminn minn er ónytur, það var bakkað á bílinn minn, magnarinn á heimabíóinu minu gefur alveg bilaðan hávaða út frá sér þegar hann er i gangi! og bara rétt í þessu drap I-podinn minn á ser og kveikir ekki á sér (nei hann er ekki batteríslaus) svo ég spyr bara hvern andskotinn hendir mig næst? af öllu sem ég hef keypt í sumar og haust er það bara rúmmið og sjónvarpið sem er i lagi.. ætli það komi jarðskjálfti og hristi sjónvarpið af veggnum eða það kvikni í rúmminu minu??? það er spurning!!! nenni ekki að blogga meira er frekar pirraður!
P.s það eru þjófar í ghettoinu grínlaust! búið að fara 2 nætur i röð í bilinn minn en reyndar er engu að stela þar... en jæja off see ya
Ungfruheimur
28. nóvember 2006 klukkan 22:18
jæja sama draslið hérna að frétta, nenni samt ekki að blogga mikið þar sem ég var að læra til 5 í nótt, en allavega var ég að enda við að horfa á south park þátt, sem er ekki mjög frásagnarfærandi nema það að kona kínverska kallsins sem rekur city wok eða shitty wok eins og hann segjir alltaf kom í þættinum og hann var að reyna að koma henni á framfæri sem tonlistarkonu svo hann semur við strákana, en þetta var aldrei fyndið fyrr en í enda þáttarins kemur heimasíða hja einhverri kínverskri kellingu sem átti einmitt að vera konan hans... hún heitir Wing Lee og er örugglega 10x lélegri og 10x fyndnari en okkar ástkæra Leoncie
þið verðið einfaldlega að tékka á þessu http://wingmusic.co.nz/ farið á sample music og hlustið á endurflutta hittara eins og return to sender, lucy in the sky with diamonds og svo Dancing Queen en það var einmitt í þættinum, hlustið á þetta og kommentið um hversu góð ykkur finnst hun vera, hahah!....
jæja ákvað að henda slóðinni af Dancing queen hérna inn ef þetta er of mikið vesenn, http://www.wingtunes.com/samples/mp3/cd%209%20-%20Dancing%20Queen%20by%20Wing/WingCD901%20-%20Dancing%20Queen.mp3

ein gömul mynd hérna af okkur vinunum ;) pís át
Ungfruheimur
23. nóvember 2006 klukkan 02:36
jæja hvað er að frétta héðan? nakvæmlega ekki neitt allavega af mér, er enn jafn duglegur i ræktinni og siðast og skolinn gengur bara ekki neitt, en það fer að styttast i próf og svona og svo er ég á sjoinn strax eftir próf, hlakkar alveg til því ég skulda alveg skildinginn og það verður fínt ef ég get borgað allt eftir það sem ég vinn i jolafriinu og tala nu ekki um það ef það er afgangur svo maður geti skellt ser i eitt stykki borgarferð í vor, en jamm svo er guddi að koma á föstudaginn og djöfull verður fínt að fá hann, ætlum að fara á splass dæmið á 1929 laugardaginn ef hann verður kominn norður þá....
En já þar sem báðir bloggarar þessarar síðu eru Benfica aðdáendur þá finnst mér alveg tilvalið að blogga smá um komandi leik í meistaradeildinni! s.s 6. Desember þá verður án efa stærsti leikurinn sem fer fram i riðlakeppninni, það er Man Utd - Benfica... Eftir alveg herfilega byrjun þá hafa Benfica unnið síðustu 2 leiki sina þegar man utd hafa tapað og hafa minir menn skorað 6 mörk í þeim og óheppnir að hafa ekki skorað fleiri mörk, Þeir eru banheitir þegar Man utd eru svellkaldir, þessi leikur s.s sker um það hvort liðið fer í 16 liða úrslit ásamt Celtic... Man Utd er að sjálfsögðu mun sigurstranglegra þar sem þeir spila heima og þurfa lika bara jafntefli, en á síðasta ári sönnuðu Benfica það að þeir gefast aldrei upp fyrr en leikurinn er buinn og slógu þá ut L'pool í þeirri keppni auk þess sem þeir urðu valdar þess að man utd komst ekki einu sinni i 3. sæti!!! held að málið sé að fjölmenna allsvakalega á einhvern góðann og stórann pub og horfa saman á leikinn ásamt því að fá okkur nokkra bjora ;)
Á nokkrar Benfica treyjur og boli ef Liverpool menn vilja fá i lani til þess að vera með mér og gudda og styðja rétta liðið.... Gummi Magg er allavega buinn að panta eina treyju þar sem hann er harður púllari og ætlar að sjálfsögðu að styðja Benfica til að Man utd detti ut...
En jæja ekkert mikið meira að segja nema ég er að horfa á Werder Bremen - Chelsea og þetta er alveg fínn leikurinn, en mamma og pabbi eru víst svo heppinn að þeim var boðið á þennan leik, svo á meðan ég horfi á þetta í tv eru þau að horfa á hann live... lucky bastardos... en jæja nog i dag pís át
p.s Man utd menn, ef þið vinnið þá þíðir ekkert að bögga mig ;) því ég tek það ekkert mikið inná mig, við höfum engu að tapa, erum miiiiklu minna lið en þið og að fara i seinni hluta uefa er ekkert til að svekkja sig yfir, þar sem likurnar eru allar gegn okkur... svo a meðan þessi leikur verður ekki bara eitthvað svindl eða niðurlægjandi burst þá tek ég þessu bara eins og maður :P
Ungfruheimur
06. nóvember 2006 klukkan 21:11
vá ég get ekki neitað því en mikið er ljúft að vera í fríi í dag :) það er s.s afmælisdagur Helga Magra svo allir vma-ingar fengu frí i dag.... en jamm hvað er að frétta annars héðan? ég fékk vinnu sem dyravörður á capone og mér til mikillar ánægju náði ég að redda svenna vatnsdal þar inn lika og ég held að ég verði bara að vera hreinskylinn, en þetta er mun skárra en að vinna í sjallannum, en hins vegar jafnast þetta ekki á við hina vinnuna mína held ég, er s.s að vinna í félagsmiðstöðinni í brekkuskóla og fæ svona að mestu leyti vel borgað til að vera að spjalla við krakkana, spila tölvuleiki og horfa á dvd.. nice ekki satt? en svo styttist í að maður fari á sjóinn er s.s búinn að sækja um að komast 1 túr fyrir jól, 1 milli jóla og nýjars og svo einn eftir áramót, það ætti að vera nóg til þess að borga skuldina sem ég er búinn að koma mér inn og vonandi mun ég eiga töluverðan vasapening lika.. já svo var svona lítið teiti hjá mér á föstudaginn, mamma og pabbi eru farin til Kenya og koma ekki heim fyrr og verða þar í 2 vikur.... vil þakka öllum sem komu kærlega fyrir heimsóknina sem gekk bara mjög vel en svo var haldið á kaffi ak en því miður drakk ég aðeins meira en ég ætlaði að gera, reyndar miklu meira, en ég hef litið drukkuð annars nuna í 7 vikur, maðurinn er búinn að vera á fullu í ræktinni nuna í 2 mánuði.. en já á annars er ekki meira að frétta nema nú eru c.a 14 mánuðir síðann ég byrjaði að spila poker og á laugardaginn þegar ég var að passa litlu frænku mina fékk ég Royal flush!!!! það er orðið langt síðan maður brosaði svona mikið en likurnar á að fá royal flush eru víst rúmmlega 1 á móti 2,5 milljónum. en ég fékk s.s ás og gosa í tigli, það kemur gosi á borðið og 10 í tigul og þristur.. ok, ég var með topp par svo ég raisaði solltið á þetta... 4. spilið kemur í borðið og það var drottning í tígli, nú var ég hins vegar ekki með topp par lengur, en ég var með næst hæsta, og mig vantaði annaðhvort einn tígul í viðbót eða kong til að ná mér í röð og vá hvað gerist ég fæ nákvæmlega tígul kónginn og s.s með royal flush ;) en jamm ég held að flestum sé sama um þetta síðasta sem ég var að skrifa en ég vildi bara svona deila þessu með þeim sem fikta í poker... jæja nenni ekki að blogga meira bið að heilsa öllum... Oddur J.
já p.s það er greinilega ekki hægt að setja inn á þessa síðu í gegnum opera vafrarann, helvitis drasl eins gott að ég copíaði textann áður en ég valdi vista... og síminn minn skemmdist og öll símanúmerin voru vistuð í simann, endilega sendiði mer annaðhvort sms með nr ykkar eða sendið mer það í gegnum msn pís át
Ungfruheimur
25. október 2006 klukkan 21:10
tetta er alveg aedislegur stadur, eg fór á Museo Picasso malaga ádan tad var alveg brjálud upplifun gvud minn godur, en tíminn er búin, ég kem aldrei aftur heim bless.
Ungfruheimur
25. október 2006 klukkan 17:36
vá nýbyrjaðir með blogg og strax farnir að koxxa á því?
úff mikið búið að gerast þessa daga... jú ég fór s.s með stebba þór til Rvk þessa helgi og það var eiginlega ekkert sérlega skemmtilegt, ég var félagsskítur á laugardaginn, allir sem ég hefði getað gist hjá voru á daft punk, nema Bragi var dauður í einhverju partý, svo ég eiginlega opnaði aftursætin til að stækka skottið á bílnum, skreið inn í svefnpoka og svaf í bílnum.... Já svo er fartölvan mín sem var stolið loksins komin heim... en það var helv, vesenn með hana hún var á þýsku og það var mjööög erfitt að breyta því en ég er mjög sáttur er nuna kominn með 12" tölvu með 2gb vinnsluminni 1.83 ghz centrino duo örgjafa og 120gb harðadisk svo þetta er alveg hörkuvél.... En vá svo fer bara að styttast í að hinn eigandi þessarar síðu fari að koma frá spáni, get ekki neitað því að mér leiðist solltið mikið án þín guddi.. en hann kemur fyrsta lagi 4. - 5. november en hann ætlar kannski að vera aðeins lengur, en jæja ég ætla að fara drífa mig í skolann og svo í ræktina, bið að heilsa...
Oddur
Ungfruheimur
06. október 2006 klukkan 15:43
all right, ég sé að sambloggar mínir hafa ekki sett eina færslu enn inn og finnst mér það nú heldur lélegt.. En jæja kl 3 í dag erum við Stefán Þór að leggja í hann til rvk þar sem margt verður að gerast m.a afmæli steffýar!! :D
En já, ég amk hef ekki farið í rvk til þess að gera eitthvað í svona 1 og hálft ár.... En já annars er bara þetta venjulega að frétta héðan, skóli, vinna og þetta, já og nýja fartölvan sem gamli keypti handa mér sem hvarf á flugvellinum í Köben er fundinn segjir lögreglan og það er bara gottt mál, fæ hana vonandi ekki seinna en á þriðjudaginn.... En ok nenni ekki að blogga meira, bið að heilsa ykkur
Oddur J.
Ungfruheimur
03. október 2006 klukkan 16:14
jæja vá held að ég sé alveg gjörsamlega búinn að fá gubbu af skolanum held að íslenska 503 toppi það að vera leiðinlegasta og ógeðslegasta fag sem íslenskir skólar bjóða upp á svo er þjóðhagfræði og spænska 403 ekkert til að rífa þetta upp... en jæja nóg um það
Fór út að hlaupa í morgunn og það er yndislegt að sjá að veturinn sé að koma, örugglega fallegasta veður sem ég hef orðið vitni af lengi.. heiðskýrt, smá sól, roslegt skyggnið og frekar kalt ánægður með þetta.
En já ég og Stefán Þór höfum ákveðið að fara suður næstu helgi, það verða afmæli og fleira að gerast, hef ekki farið suður fyrir utan þegar ég millilandaði með Björgvin og svo bara þegar maður fer til útlanda í svona 1 og hálft ár, svo það verður heavy magnað loksins að fara í höfuðborgina.
Hey já þeir sem ekki kunna póker ættu að hætta að lesa hérna.....
En já ég var að spila á everestpoker, sem er bara mjög fínt pókerborð... Getur spilað frítt á 10 manna borðum og samt unnið smá klink, ég hef verið að gera það og ég komst frá 0 upp í 3, eitthvað dollara... sem er fáranlega erfitt, að byrja á 0 og spila bara á nokkra senta tournamentum. En þegar maður er kominn í 1 dollara amk þá er maður snöggur að margfalda þetta.
En já ég var allavega að spila og ég fékk 2 kónga á hendi og varð heavy sáttur og spilaði það rétt á floppinu kom kóngur, 10 og eitthvað annað lágt spil og yess þarna á þessari stundu var ég með sterkustu hendi sem hægt var að vera með, ég ætlaði að slowplaya þetta, svo ég checkaði bara og já einn garmurinn á borðinu hækkar umtalsvert og að sjálfsögðu sá ég það.... 4 spilið var eitthvað lágt lika, enginn séns á hvorki lit eða röð eins og stað var... svo kom 5 spilið tigul tía sem gerði það að verkum að ég var kominn með frábæra hendi! því það voru komnir 3 tiglar í borði og einhver gæti verið með flush! en ég var nátturlega með 2 konga á hendi, 1 á borði og tvær níur á borði s.s fucking nice fullt hús! aðeins ein hendi gat unnið mig og líkurnar að einhver væri með það eru stjarnfræðilegar... ég veðja á öllu sem ég átti og potturinn var orðinn einhverjir 10 dollarar ég legg hendina niður alveg svaka sáttur, en kemur þá ekki hin ormurinn með tvær helvíts tíur á hendi og var þá með fjórar tíur... vá þetta var það sárasta sem ég hef lent í síðan ég byrjaði að spila Texas hold'em í fyrra.....
En jæja nóg blogg í dag, en Póker spilarar hvernig væri að við förum að hittast og spila eitt gott mót?? Já by the way var að kasta inn allskonar póker dæmi í hyperlinkinn fyrir ofan...
kveðja Oddur
Ungfruheimur
30. september 2006 klukkan 19:23
Vá ég held að gærkvöldið hafi án efa verið leiðinlegasta djammkvöld það sem liðið er af þessu ári! Byrjuðum kvöldið á að fara til Jón Steins sem var svosem fínt, en um miðnætti tóku skemmtistaðir bæjarins við. Ég, Stebbi Þór og Ingo löbbuðum á alla helstu staðina og það var allt það sama, ekki rassgat að gerast! jeg held að eftir svona lélegt gærkvöld verði maður frekar rólegur heima hjá sér í kvöld. En já allavega held að stefnan sé tekin í að fara suður næstu helgi var boðið í afmæli og held ég mæti þar...
en eru margir sem ætla suður næstu helgi?
Nenni ekki að skrifa meira, vona hinsvegar að sambloggarar mínir verði aðeins duglegri að blogga, Guddi hefur smá afsökun þar sem það er aðeins erfitt fyrir hann að komast á net en Stebbi Jök má alveg fara rita eitthvað!
Oddur
Ungfruheimur